Guðjónsmótið / Guðjónsdagurinn 2012
11. jan. ´12 | babu | 0 athugasemdir
Auglýsing-mfl. karla
Laugardaginn 4. febrúar mun Knattspyrnudeild Selfoss standa fyrir Guðjónsdeginum 3. árið í röð. Guðjónsdagurinn er haldinn til minningar um frábæran félaga og vin Guðjón Ægi Sigurjónsson.
Klukkan 9:30 um morguninn mun hefjast í Íþróttahúsunum Iðu og við Skólavelli Guðjónsmótið í knattspyrnu sem er Firma og hópakeppni. Leiktíminn verður sá sami og í fyrra eða 1x 8 mínútur og verður spilað í riðlum þar sem efsta lið hvers riðils mun komast áfram í undanúrslit. Það er nú bara þannig að við getum einungis tekið á móti 22 liðum eða hópum þannig að það er um að gera að skrá sig sem fyrst. Skráning er hjá Sævari Gísla í síma 899-0887 og Sveinbirni Más 897-7697
Myrra – Sigurvegari síðasta árs
Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin auk annara aukaverðlauna. Þetta er viðburður sem ekki má láta fram hjá sér fara, taumlaus gleði og grín og misgóðir sparksnillingar að reyna fyrir sér í knattspyrnu. Sigurvegarar síðustu tveggja ára eru Myrra snyrtistofa og veit ég fyrir víst að þeim verður veitt veruleg keppni þetta árið.
Að móti loknu verður svo stanslaust stuð í Hvíta húsinu á Styrktarballi Knattspyrnudeildarinnar þar sem að hið magnaða BOLTABAND mun halda uppi fjörinu fram á nótt. Baltabandið skipa þeir Njörður Steinarsson, Adolf Ingvi Bragason (bjórbandinu) Leifur Viðarsson (OFL og laga/textahöfundur fyrir Ingó) Herbert Viðarsson, Gunnar Ólason, Hanni Bach og Karl Þór Þorvaldsson (allir Skímó meðlimir) og hafa þeir lofað gríðarlegu stuði og almennri skemmtun.
Húsið opnar kl: 23:00 og stendur ballið e-h fram á nótt. Miðaverð er 2000 kr og væntanlega verður forsala og þá verður hún auglýst.
Láttu þig ekki vanta Laugardaginn 4 feb og taktu þátt í frábærum degi með okkur til minningar um frábæran félaga.
Hvíta Húsið er tilbúið í slaginn 4.febrúar
Hægt er að sjá umræðu um þennan dag á Facebook og þar er hægt að bjóða vinum að mæta.
