Selfoss vann BÍ/Bol 2-0
12. des. ´11 | Tomas | 5 athugasemdir
Annað-mfl. karla-Umfjöllun-Undirbúningstímabil
Selfyssingar tóku á móti BÍ/Bolungarvík í æfingaleik í Kórnum sl. laugardag. Selfyssingar voru mun betri í leiknum og unnu verðskuldað 2-0. Ólafur Karl og Viðar Kjartans skoruð mörk Selfyssinga og var þetta fyrsta mark Óla Kalla fyrir Selfoss og óskum við stráknum til hamingju með það. Arilíus og Henning léku sína fyrstu leiki með selfoss á tímabilinu og var sérstaklega ánægjulegt að sjá þá í búning.
Byrjunarlið Selfoss var eftirfarandi: Elli, Reynir, Stefán Ragnar, Siggi Eyberg, Pálmi, Ingó Tóta, Svavar Berg, Arilíus, Maggi, Þorsteinn Daníel og Ólafur Karl.
Selfyssingar byrjuðu leikinn vel og fyrsta færið áttu þeir er Svavar berg tók góða sprett upp kantinn gaf inn á Alla sem framlengdi á Ólaf Karl, en fínt skot hans fór rétt yfir. Stuttu seinna lagði Ólafur Karl upp gott færi fyrir Þorstein Daníel en skot hans fór hárfínt framhjá. Eftir þessi færi áttu Selfyssingar nokkrar ágætis sóknir, en engin virkilega hættuleg. Hinum megin varði Elli tvívegis vel.
Selfyssingar komust svo yfir eftir um 30 mín leik er Alli átti frábæra sendingu inn á Ólaf Karl Finsen sem afgreiddi boltann snyrtilega yfir Þórð Inga í marki BÍ/Bol. Virkilega vel gert hjá báðum og fyrsta mark Óla Kalla orðið að veruleika.
Fátt markvert gerðist fram að hlé, en þar voru gerðar eftirfarandi skiptingar: Jói inn fyrir Ella, Viðar Kjartans fyrir Alla, Ingi Rafn fyrir Þorstein Daníel og Henning fyrir Magga.
Vestfirðingar byrjuðu seinni hálfleik betur og áttu sláarskot strax í byrjun. Stuttu seinna borgaði Henning í sama er hann skaut með vinstri fæti satans í slána hjá BÍ/Bol. Ólafur Karl kom sér svo í gott færi eftir horn en var óheppinn með skotið sem fór yfir. Ingvi Óskars kom svo inn fyrir Svavar Berg, Jónas fyrir Reynir og Svenni fyrir Ingó Tóta.
Ólafur Karl og Viðar Kjartans léku sig vel í gegnum vörn andstæðingana, en varnarmaður náði á síðustu stundu að afstýra marki. Stuttu seinna átti Ingvi Óskars svo gott skot sem var vel varið. Jónas kom sér svo í gott færi, en skot hans úr vítateig fór rétt yfir.
Seinna mark Selfoss skoraði svo Viðar Örn Kjartansson er hann stýrði knettinum snyrtilega í netið með höfðinu eftir hornspyrnu frá Inga Rafn. Stuttu seinna skoraði Viðar Kjartans aftur, en dómarinn dæmdi markið af vegna rangstöðu sem menn voru ekki á eitt sáttir um í stúkunni.
En 2-0 sigur Selfyssinga í ágætis leik þar sem nokkrir fínir punktar sáust. Næsti leikur Selfyssinga er gegn Grindavík laugardaginn 17. des kl 13.30 og fer hann að sjálfsögðu fram í Kórnum Kópavogi. Þetta er síðasti leikur Selfoss fyrir áramót og standa vonir til að Kjartan Sigurðsson spili þann leik sjóðandi heitur og nýkominn frá USA.

5 Comments
Gott að sjá markaskorarann Viðar Örn mættan á svæðið :) Eins gott að sjá þá Alla og Henning. Ég er reyndar á þeirri skoðun að við ættum að hætta að kenna vinstri fót Stokkseyringsins við son glötunarinnar. Án þess að ég sé að setja útá annars mjög góða grein, greinarhöfundar.
Tommi – er eitthvað vitað hvort HEJ muni vera í þessu af fullum krafti?
Þetta er leikmaður sem myndi styrkja liðið verulega að mínu mati. Ég hef saknað hans gríðarlega sl 2 sumur og er ennþá minnisstæð innkoma hans í bikarleikinn á móti Leikni 2009.
Takk fyrir og rétt hjá þér Valur, maður á ekki ákalla hann. En þetta er vísun í Skjálftasöng um Henning sem var eftirminnilegur :)
Annars er Henning að athuga á sér hnéið og það yrði auðvitað frábært að fá hann aftur í liðið. Við vonum það besta, og biðjum við guðs um góðan bata :)
Við biðjum fyrir hnéinu hans Hennings og vonum að þessi magnaði leikmaður verði í eldlínunni með okkur í sumar. Svo var ég að taka eftir þessu:
„og standa vonir til að Kjartan Sigurðsson spili þann leik sjóðandi heitur og nýkominn frá USA.“
Sem eru náttúrulega góðar fréttir, þarna er mikill gæða miðvörður á ferð.
Eins mikið og maður vill að Henning verði með þá hef ég litla trú á því útaf 2 ástæðum. Er ekki vinnan hans þannig að hún skarast frekar mikið á fótboltann og hin ástæðan er auðvitað hnéð á honum, má hann nokkuð vera að spila eitthvað meira, því miður þá held ég ekki.
Mér finnst að við ættum að leggja meira upp úr því að halda Arilíusi. Hann er búinn að vera lykilleikmaður hjá okkur frá árinu 2000 eða 2001 og okkar leikjahæsti leikmaður og það er mín skoðun að sóknarleikur okkar er mun betri þegar hann er með en þegar hann er ekki með og Logi virðist hafa tröllatrú á honum enda spilaði hann örugglega alla leiki sem hann mátti taka þátt í á þessu tímabili. Hann hefur svo gott auga á spil og les leikinn mjög vel, nú þegar Einar Ottó, Sævar og Ingþór eru allir hættir þá finnst mér við ekki mega við því að missa Arilíus líka og vona ég innilega að menn nái að fá hann til að taka slaginn með okkur í Pepsi-deildinni en hann er auðvitað að vinna einhverstaðar fyrir vestan svo að það gæti verið erfitt.
Áfram Selfoss!