Archive for desember, 2011
30. des. ´11 | Máser | 1 athugasemd
Fréttir
Þeir fóstbræður Sævar Þór Gíslason og Sveinbjörn Másson eru mættir galvaskir á sinn stað í TÍBRÁ þar sem flugeldasala knattspyrnudeildar Selfoss er staðsett og taka strákarnir vel á móti gestum með heitt á könnunni, nýjasta slúðrið og langbesta verðið. Knattspyrnudeildin hefur verið með flugeldasölu í hartnær 30 ár og hafa þeir félagar líklega starfað langlengst allra fyrir deildina og standa [...]
29. des. ´11 | babu | 0 athugasemdir
Fréttir-mfl. karla-mfl. kvenna-Uppgjör
Knattspyrnudeildin átti sigurvegarann í bæði karla og kvennaflokki árið 2011 í kjöri á íþróttamanni ársins, Jón Daði Böðvarsson vann hjá strákunum og Guðmunda Óladóttir vann annað árið í röð hjá stelpunum. Verðlaunin voru veitt á uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar og var samkeppnin gríðarlega hörð í ár. Jón Daði átti frábært ár sem hann hóf með lánstíma hjá AGF í [...]
29. des. ´11 | babu | 0 athugasemdir
Fréttir-Slúður
Það hefur ekki margt lekið úr herbúðum okkar manna hvað leikmannaslúður varðar undanfarna mánuði en þó er verið að vinna á fullu bak við tjöldin. Við höfum m.a. fengið veður af því að kvennaliðið fái góðan liðsstyrk fyrir sumarið í margreyndri serbneskri landsliðskonu. Höfum ekki nafnið en hún ku vera 27 ára sóknarþenkjandi miðjumaður. Förum betur yfir þetta þegar við [...]
29. des. ´11 | Selfoss | 1 athugasemd
Fréttir
Björn Kristinn Björnsson hefur verið endurráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu auk þess sem liðið framlengdi samninga við fjóra lykilleikmenn frá því í sumar. Björn Kristinn tók við Selfossliðinu fyrir síðasta keppnistímabil og náði frábærum árangri með liðið, sem varð Lengjubikarmeistari í B-deild og í 2. sæti í 1. deild Íslandsmótsins. Þar með tryggði Selfoss sér sæti í efstu deild [...]
25. des. ´11 | Selfoss | 2 athugasemdir
Fréttir-mfl. kvenna-Uppgjör
Það er ekki sjálfsagður hlutur að vera hluti af hóp eins og meistaraflokk kvenna, heldur eru það forréttindi. Fótbolti er búinn að vera hluti af lífi okkar frá því við vorum litlar stelpur á æfingu hjá Laufeyu Guðmunds og erum við búnar að ganga í gegnum „súrt og sætt“ saman. Það sem fólk gleymir kannski er hversu mikla fórn við [...]
