Hin hliðin – Stefán Hannesson
01. nóv. ´10 | babu | 5 athugasemdir
Fréttir-Hin hliðin
Viðurkennum það bara, það er komið svo mikið haust að það er eiginlega vetur. Fótboltinn er reyndar að byrja að rúlla í dag en þetta fer ekkert að verða gaman fyrr en eftir áramót, allra síst fyrir strákana sem eiga í vændum brútal (afsakið frönskuna) æfingaprógramm.
En það góða við þennan árstíma er að það er svo lítið að gerast sem telst til frétta á Orginu að við hefjum aftur hin sívinsæla dagskrárlið, hina hliðina. Fyrstur á mælendaskrá er eldheitur stuðningsmaður liðsins, strákur sem fór upp alla yngri flokka Selfoss og er svo gáfaður að við höldum að hann sé í Gettur Betur liði FSu. Stefán Hanesson, sonur Hannesar þýskukennara (í FSu).
Stefán Hannesson…eftir nokkur ár
Fullt nafn: Stefán Hannesson
Gælunafn: Stebbi (félagar mínir eru ekki frumlegri en þetta)
Aldur (í anda): 20 ára (10 ára um jólaleytið)
Giftur/sambúð: í sambandi með henni Boggu minni (sem er bróðurdóttir Jóa Bjarna í þokkabót!)
- Ekki fara á ættarmót maður!!!
Börn: ekki alveg strax takk fyrir
Hvað gerir þú: er á 1. ári á íþrótta- og heilsubraut HÍ á Laugarvatni (hvað eru mörg ,,á‘‘ í því?), sinni líka liðveislu á vegum sveitarfélagsins. Spila líka fótbolta með stórklúbbnum Árborg (eru æfingarnar byrjaðar?).
- Ekkert á í því!
Hvað gerir þú ekki: hlusta á FM 957, sækja lög og myndir af netinu, halda með KR, fara snemma að sofa, vakna snemma, og margt fleira
Uppáhalds vefsíður: netrúnturinn er svona: mbl.is, fotbolti.net, sunnlenska.is, ebay.co.uk, selfoss.org, arborgfc.net, facebook.com, verð samt að segja selfoss.org svo þetta verði birt (er það ekki reglan annars?)
- Auðvitað.
Uppáhalds Facebookvinur: Björgvin Óli Ingvarsson, sem fer inn á facebookið sitt ca. tvisvar á ári. Síðasti status frá honum var skrifaður 10. september sl. og hljóðar svona: „Haha var ad komast ad tvi ad fornaldar siminn minn sem eg er buinn ad eiga i 2 ár getur farid a facebook“
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Jinx með Quarashi. Keypti hana 2001 eða 2 hjá honum Magnúsi Ninna í snilldarversluninni Jack and Jones sem seldi föt og geisladiska og var í sama plássi og Hljóðhúsið sáluga var í (verst hvað Kjarninn er orðinn mikill draugabær). Plöturnar mínar eru núna í kringum 450 enda er engan veginn nógu töff að dánlóda!
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Erfitt að gera upp á milli uppáhaldshljómsveitanna minna, Pink Floyd og Depeche Mode. Held ég velji DM þar sem ég er búinn að sjá Rogers Waters live (söngvari/bassaleikari Pink Floyd). Væri líka ekkert leiðinlegt að sjá Daft Punk live!
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: vegna ungs aldurs hef ég bara kynnst tveimur selfysskum skemmtistöðum , Hvíta húsinu og 800 bar (er af þeirri kynslóð sem tók við af Pakkhús/HM Café kynslóðinni). Hvíta hefur vinningin þegar kemur að tónlist en 800 þegar kemur að barnum (bróðir minn er að vinna á honum, nenni ekki að hafa hann í fýlu).
- Þetta er eitt það sorglegasta sem komið hefur fram í Hinni hliðinni!! Þú hefur ekki lifað ef þú misstir af Pakkhúsinu (hvað þá Inghóll og Gjáin)!! Líklega ertu svo ungur að þú talar um Snælandvideoplanið…o sei sei!!
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: ætli það sé ekki bara Plóli spurningakóngur
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: 5 mín (vakna rétt áður en ég þarf að leggja af stað, svefninn er dýrmætur!).
Hefur þú vaknað við það að pabbi þinn berji þig með bók: nei, en hann vakti mig þó alltaf með frosnum fiski þegar ég var krakki, virkilega óþægilegt.
- Fólk sofnar bara einu sinni í tíma hjá Hannesi!
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: sem Man United maður leit ég mikið upp til Ryan Giggs og Ola Gunnars Solskjær
Hvaða stöðu spilaðir þú í den: yfirleitt alltaf vörn, reyndar á miðjunni í 5. flokki. Fékk aldrei að prófa strikerinn, virkilega súrt, spila annars bakvörð í dag.
Hvað fórstu langt í yngri flokkum Selfoss; kláraði alla flokkana óslitið nema 7. flokkinn (byrjaði á yngra ári í 6. flokki). Meistaraflokksferill minn hjá Selfossi samanstóð af þremur æfingum hjá Einari Johnny, er virkilega stoltur af þeim árangri.
Ertu að spila eitthvað í dag: er að æfa með Árborg og er skráður í liðið en á eftir að spila minn fyrsta leik fyrir félagið, komst samt inn á liðsmyndina núna í vor sem var vægast sagt ansi skrautleg (hvenær verður hún birt GK?)
Erfiðasti andstæðingur: Marinó Lilliendahl, var nokkrum þyngdarflokkum fyrir ofan alla og grófari en Roy Keane í þokkabót.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Siggi Eyberg, spilaði alltaf sókn á æfingum.
Fyndnasta moment tengt fótbolta (þjappa/í leik): fórum til Liverpool í 3.flokki árið 2006 þegar Gaui Tobba var að þjálfa og tókum þátt í einhverju móti. Duttum strax út úr riðlakeppninni og því var ákveðið að taka þátt í formlegum æfingaleik á móti öðru liði sem var líka dottið út (leikurinn var á vegum mótshaldaranna). Þessi leikur er með því skrautlegasta sem ég man eftir. Liðið sem við spiluðum við var vægast sagt lélegt og með lágvaxnasta og feitasta markmann sem ég hef séð. Leikurinn var varla byrjaður þegar Siggi Eyberg tók eitt af sínum frægu skotum frá miðju og boltinn flaug í háum boga yfir markmanninn sem hafði allan tíma í heimi til að staðsetja sig, hann var bara svo lítill og náði ekki að verja þetta laflausa ,,skot‘‘. Þegar staðan var svo ca.5-0 fyrir okkur fór dómarinn (sem var svona 15 ára) grenjandi útaf þar sem hitt liðið tuðaði svo mikið í honum, þetta var mjög fyndið móment, sérstaklega þar sem þetta var formlegur leikur. Marinó Lill tók því við dómaraflautunni og dæmdi restina af leiknum sem náði klárlega ekki 90 mínútna lengd enda vissi enginn hvað var búið mikið af honum og við hættum svo bara að spila.
Besti samherjinn: Jón Daði Böðvarsson. Mjög þægilegt að senda bara á hann og hann reddar þessu, gerðum það a.m.k. í 2.flokki í fyrra.
Sætasti sigurinn í fótbolta: leikur á móti Þrótti R. í deildinni í 2.flokki í fyrra. Leikurinn var á föstudeginum eftir þjóðhátíð, spilaður á Hellu (hétum Selfoss/KFR þá) í grenjandi rigningu. Megnið af liðinu var ennþá þunnt eftir Eyjar, flesta lykilmenn vantaði og við vorum að nálgast botninn, sem sagt virkilega súrar aðstæður. Man að staðan var 1-1 þegar það voru ca. 10 mínútur eftir þegar Jón Daði tók sig til og fékk boltann á kassann með mann í bakinu, sneri sér við og negldi boltanum fast niðri undir markmanninn. Virkilega sætur sigur. Það var líka ansi sætt þegar við urðum Íslandsmeistarar innanhús í 3.flokki 2005, ég er á þeirri skoðun að 89 og 90 árgangarnir séu með þeim bestu sem hafa komið upp á Selfossi, synd að þessir árgangangar náðu ekki lengra á sínum tíma.
- ´81 og ´82 er auðvitað það eina af viti sem komið hefur upp í fótboltanum hérna á Selfossi!!!
Uppáhaldslið í enska: Manchester United, enda voru þeir ekkert lítið góðir þegar ég var krakki. Annars ber ég sterkar taugar til Stockport County sem er líka frá Manchester, spila alltaf sem þetta lið í FIFA.
Uppáhalds knattpyrnumaður: Ryan Giggs fyrir að vera leikjahæsti leikmaður Man Utd, Eric Cantona fyrir að vera legend og Roberto Carlos fyrir að sýna fólki að bakverðir eru líka góðir fótboltamenn. Er líka mjög hrifinn af Steven Gerrard fyrir að halda tryggð við Liverpool, þoli ekki hvað peningarnir eru að stjórna fótboltanum.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: ætli það sé ekki minn fyrsti þjálfari, Sverrir Ingibjarts, sem kenndi mér að spila fótbolta. Annars vorum við alltaf í besta forminu hjá Gumma Sigmars, með mesta metnaðinn hjá Gauja Tobba, og með minnsta sjálfstraustið hjá Kristjáni Óla (hann var kóngurinn). Auk þess hef ég verið hjá Sigga Jóns og Jóni Pétri Robba, fínir náungar.
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Gummi Tóta, Jón Daði, Stebbi Raggi og Viðar. Annars var Reynir Björgvins frá Hvolsvelli einn besti fótboltamaður sem ég hef spilað með, lenti því miður í meiðslum.
Grófasti leikmaður suðurlands fyrr og síðar: Marinó Lilliendahl á þennan heiður skuldlaust. Jakob Björgvin Jakobsson og Árni Sigfús Birgisson fylgja fast á eftir.
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: í rauninni öll íslensk innandeildarlið fyrir utan Selfoss og Árborg, er gífurlega stoltur Selfyssingur. Annars eru KR, Haukar og Leiknir lið sem ég myndi aldrei nokkurn tímann vilja koma nálægt.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Hörður Magnússon, nær bestu öskrunum. Annars sakna ég Snorra Sturlusonar, röddin hans minnir mig svo mikið á NBA-þáttinn á Stöð 2 í gamla daga. Samúel Örn er líka snillingur.
- Þú hefur misst af Herrakvöldinu í fyrra :)
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Silja Úlfarsdóttir, talaði eins og vélmenni þegar hún leysti af síðasta sumar. Ásgeir Erlends er líka pirrandi tilgerðarlegur, samt fínn náungi.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Jamm, á HSK-mótinu árið 2000 í 6.flokki. Ætlaði að hreinsa frá marklínu með þvílíkri klippu sem endaði með því að boltinn fór í legghlífina og svo í stöngina inn.
Hvað kemur þér í gott skap: Plötumarkaðir, spila fótbolta, góður matur (humar!), þegar kærastan mín spyr heimskulega, rökræða við Óla (Brúsa) vin minn og bróður minn (þeir eru sama manneskjan fyrir mér), vinna keppni, þegar Selfossi gengur vel í hverju sem er, allt sem tengist jólunum, ganga út úr prófi/klára ritgerð, djamm, spurningakeppnir, spila með hljómsveitinni minni o.m.fl.
Í hverju varstu bestur í skóla: Íslensku, sögu og landafræði, var líka alltaf bestur í píp-testi í íþróttum.
Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: erfið spurning fyrir hvern þann sem klárað hefur FSu (besti skóli í heimi!), en ætli Árni Blandon menningarviti og Erlingur Brynjólfs sögukennari eigi ekki vinninginn. Aðrir tilnefndir eru Maggi Tryggva íþróttakennari, Ingis þýskukennari og Ida Lön dönskukennari. Pabbi var þó líklega verstur, það var svo mikið heimanám hjá honum!
Uppáhalds barnaefni í æsku: Múmínálfarnir, það besta sem samstarfs Finnlands og Japans hefur borið af sér. Sögur úr Andabæ, Strumparnir, Alfreð Önd, Brakúla greifi og margt fleira var gott líka, enda var 90‘s tímabilið gullöld teiknimyndanna, annað en þetta súra tölvuteiknaða kjaftæði sem er í gangi í dag.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Sunnudagar, þá á maður eftir að læra, og öll vikan er framundan, eini kosturinn er að fá að sofa út.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: England, besta tónlistin, íþróttin og sjónvarpsþættirnir koma þaðan.
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Unglingavinnan, mest mannskemmandi vinna sem til er. Annars var vaktavinnan á Olís ekkert að heilla.
Hver á að svara þessum lista næst: Siggi Eyberg, hann er gull af manni.
Eitthvað að lokum: vil benda lesendum orgsins á wikipedia-síðuna sem ég gerði um Selfossliðið og hvet alla sem nenna að bæta og breyta síðunni (vantar t.d. að setja merkið fyrir ofan upplýsingatöfluna, ég kann það ekki). Það er svo mikill klassi eitthvað að eiga wikipedia-síðu tengda sér. Vil einnig biðja leikmenn Selfossliðsins um að hugsa sig um áður en þeir hverfa í bæinn, alltof mikil lenska hjá selfysskum íþróttamönnum að láta sig hverfa þegar illa gengur, ekki bara í fótboltanum heldur öllum íþróttum.
Að lokum vil ég svo þakka meisturum Einari Babú og Má Ingólfi fyrir að nenna að halda úti stuðningsmannasíðu sem þessari, klárlega skyldueign hjá hverju félagi.
PS. Allir að mæta á fyrsta Pub Quiz vetrarins nk. föstudag kl.21:30 á Pizza Islandia, reynum að endurverkja Pub Quiz hefðina góðu á Selfossi.
*innskot eru eftir sem áður frá umsjónarmanni (Babu ) komin.

5 Comments
Árni Blandon og Erlingur uppáhaldskennararnir ??!! what… Lalli er klárlega bestur :o) annars já sammála með alltof mikið heimanám hjá pabba þínum en mér finnst hann samt einn af skemmtilegustu kennurunum :)
Blandon og Erlingur eru stórlega vanmetnir kennarar!
Þið eruð greinilega hundgömul bæði tvö. Ég er uppáhaldskennari allra í dag.
Það er ekki einu sinni talað um Tóta Ingólfs í þessu kennaratali!! Hann þarf að fara kenna aftur kallinn.
En varðandi síðuna þá þakka ég fyrir en tek fram að Tommi Þórodds og Þóra Margrét eiga líka að vera með.
Tíma hjá Má sé ég fyrir mér að byrji á því að allir séu látnir tilbiðja hann í 5 mín sem kæmi í stað upplestrar á hverjir séu mættir.
Ég byrja alla tíma á því að láta nemendurna syngja til mín „the wonder of you“