Hin hliðin á mfl kvk – Gumma
29. apríl ´10 | babu | 4 athugasemdir
Annað-Hin hliðin-mfl. kvenna
Áfram ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Síðast svaraði Anna María og hún valdi hana Gummu litlu til að svara á eftir sér.
Fulltnafn: Guðmunda Brynja Óldóttir
Gælunafn: Gumma, Gumms, Meistrarinn, Landsliðs-Gumma
Aldur (í anda): 3ja ára, ég er svo mikið barn
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 3. janúar 1994 í Reykjavík
Foreldrar/systkini: Móðir: Anna María Snorradóttir, Faðir: Óli Rúnar Ástþórsson, fóstur-faðir: Bjarni Helgason, fóstur-móðir: Helga Sigurðardóttir. Svo 3 systkini: Álfheiður Eva, Tryggvi og litla gæludýrið Snorri Páll
Hjúskapastaða: Á lausu
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Já, Í Breiðholtinu
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Mhm.. eitthvert sem er heitt og maður verður tan
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: er í skóla
Uppáhalds vefsíðu: facebook, fotbolti.net og gossip.is
Uppáhalds Facebookvinur: Dagný er alltaf einhvað að reyna við mig á facebook þannig það er klárlega ekki hún, Anna María er ofarlega á listanum og svo Sara Árna en hún er duglega að deila ljóðum á vegginn minn
Hvað eldaðir þú síðast: Mér er ekki treystandi í eldhúsinu en ég grillaði mér brauð alveg sjálf ef það telst með
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Hókus pókus
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Muse
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Er með einn vitleysing í Fylki, það kannast allir við hana
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Það fer eftir því hvað klukkan er en annars á góðum degi eru það 20 mín
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Ég er nú ekki orðin lögleg á neina skemmtistaði, þannig það er pass
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Ég hélt mikið upp á David Beckham
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Ýta í hann, traðka á tánum á þeim og að setja hendurnar aðeins í andlitið á þeim.
Erfiðasti andstæðingur: Mér finnst allir jafn auðveldir
Ekki erfiðasti andstæðingur: Allir
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna (mega alveg (endilega) vera grófar):Einhverra hluta vegna er ég aldrei á staðnum þegar einhvað gróft gerist eða skemmtilegt
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Katrín Ýr fær þann heiður
Sætasti sigurinn í fótbolta: Þegar ég var að keppa á móti Fylki með 2.fl einu sinni unnum 2-1, það var nokkuð sætt að setja´ann á lokamínútunni.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Tapið á móti Haukum er ofarlega, svo tapið á móti Frökkum með U-17 síðasta haust var frekar svekkjandi þar sem þær skoruðu úrslitamarkið með hendinni og tapið með U-19 á móti Tékkum var mjög svekkjandi því ef við hefðum unnið hefðum við farið áfram
Uppáhaldslið í enska: Manchester United
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Anna María (að vera efnileg þýðir ekki endilega að þú sért góð)
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Varnarmennirnir hjá okkur geta verið ansi grófir, kem oft heim með mar á fótunum eftir þær
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Haukum og Þrótti
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Dóri “Hitler”
Besti íþróttafréttamaðurinn: Mér er alvega sama um íþróttafréttamennina finnst þeir allir jafn góðir og lélegir, en þar sem allir segja Gummi Ben segi ég það bara líka
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Þeir eru allir alveg eins
Hefurðu skorað sjálfsmark: Já einu sinni í 5.fl á símamótinu
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Erna og Sif, maður á oft í erfiðleikum með að fylgjast með
Hver er háværust í hópnum: Þegar maður pirrar Döggu þá verður hún hávær
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Ég myndi taka Önnu Maríu með svo hún gæti þjónað mér, úrvalskokkinn hann Tryggva bróður til að elda fyrir mig og Snorra bróður til að pína
Hvað kemur þér í gott skap: Góðu skotin sem ég skýt á Döggu og hún reynir að verja sig með einhverjum aulabröndurum
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: Ég myndi finna mér eitthvað fórnarlamb og gera því lífið leitt þennan dag
Hverjar eru merkustu persónurnar sem Selfoss hefur alið að þínu mati: Allavega þegar maður googlar þetta þá kemur mynd af Sævari, Stefáni Ragnari og Gumma tóta, en ég vil meina að ég sé það
Frægasti Selfyssingurinn: Ingó er svolítið frægur
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Öllu nema tungumálum
Uppáhaldskennari ever: Guðbjörg Grímsdóttir íslenskukennari
Uppáhalds barnaefni í æsku: Disney myndirnar eru ennþá í miklu uppáhaldi
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Þriðjudagar, þá er ég ekki í neinu gati
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, stór skemmtilegt fólk sem á heima þar
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Hef bara unnið í unglingavinnunni og hún er nú ekkert sérstök
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: hæ ;* ég er stelpa undir lögaldri, gg sæt & er þúst til í ALLT hvað sem er, just name it hehe lolz <3 finnst geðveikt gaman að kynnast nýju fólki og elska að versla föt;*
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Bára því hún er svooo stór
Spurning á næsta viðmælanda: hugsaru einhvertíman um það : váá hvað ég vildi að ég væri eins og Gumma?
Staðreynd um þig sem fæstir vita, verður að vera dagsatt litla pía! (Spurning frá síðasta viðmælanda) ég kann Anastasiu utan af, mikið afrek og fór mikill tími í það
Eitthvað að lokum: Tan is not a color, Tan is a lifestile


4 Comments
Þú ert náttúrulega ekki heil Gumma :)
HAHAA… Gumma,, Shiit.. það myndu klárlega e-h gamlir perrar svara þessu einkamála dóti.. hahaha
ég er að meta einkamál.is auglýsinguna þína haha!
ert s.s komin á gelgjuskeiðið litla barn! ;)
ég er að meta einkamál.is auglýsinguna þína haha!
ert s.s komin á gelgjuskeiðið litla barn! ;)
Falleg mynd af þér með Magga Mix,, þetta gera samskipti milli módels og myndatökumanns ;)