Hin hliðin á mfl kvk – Dagný Páls
05. apríl ´10 | babu | 4 athugasemdir
Annað-Hin hliðin-mfl. kvenna
Á næstu vikum ætlum við að kynna okkur betur alla leikmenn meistaraflokks kvenna. Til þess ætlum við að fá þær í hina hliðina sem síðan verður þeirra profile hér. Til að ríða á vaðið fengum við hana Sif Sigurðardóttir og valdi hún markmanninn knáa, Dagný Páls til að svara á eftir sér.
Það er margt athyglivert í svörum hennar, hjúskaparstaðan er í óvissu, hún hefur sömu gælunöfn og Jón Guðbrands, les sömu síður og Tommi Þórodds, það er typpasafn á Húsavík, hún myndi nýta hæfileikan að vera ósýnileg mjög vel og er engu að síður svo ung að Gunni Borgþórs er uppáhalds kennarinn hennar… og hann rétt varla tvítugur!
Fullt nafn: Dagný Pálsdóttir
Gælunafn: Það er misjafnt, fer eftir dögum samt: Dagga lessa eða Dagga tussutryllir svona helst.
Aldur (í anda): Er bráðþroska í mínum huga, en segjum svona 7-9 ára. Fyndið að ég er með bílpróf.
Fæðingardagur/ár og hvar á jarðskorpunni: 1990, 10 september og á Akureyri,með K.
Foreldrar/systkini: Ágústa Sigríður Sigurðardóttir, Páll Ríkarðsson, Dagmar og Elín Pálsdætur, Haukur my big brother, Davíð og Karítas og svo Sævar:)
Hjúskaparstaða: Heyrðu ég veit það ekki, fólk verður bara að komast að því sjálft.
Hefurðu þú búið annarsstaðar en á Selfossi: Já á Víkinni góðu = Húsavík is the place! Typpasafn þar og svona fyrir dömurnar.
Ef þú yrðir að flytja á annan stað á Íslandi. Hvert færir þú: Ábyggilega einhverstaðar í bæinn:)
Hvað ertu að gera fyrir utan að spila fótbolta: Ég lyfti, elska það hreinlega og ætla taka þátt í Fitness í Nóvember:) og svo læri ég í FSU, og keyri á hnakkabílnum mínum Nissan Almera GTI niður Laugarveginn.
Uppáhalds vefsíður: Facebook, selfoss.org, fótbolti.net, mbl.is, lez-jungle.com, vodvafikn.net, fitness.is.
Uppáhalds bloggsíða: Bloggsíða, hvað tilheyrir því? Facebook bara:’)
Uppáhalds Facebookvinur: Það eru svo margir, en Anna María og Guðmunda skara aðeins frammúr.
Hvað eldaðir þú síðast: Kjúllann góða.
Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Spice girls:D, ég var alltaf Melbí.
Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Silversun pickups!:D, veit samt ekkert hver það er.
Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Ég er með sjálfa mig, telst það með?
Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Heyrðu ég vakna, og það tekur mig kannski 3-5 mín að fara úr rúmi.
Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Barbara og svo var Q-bar í uppáhaldi þegar hann var!
Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Harry Kewell, Alan Smith- Leeds fólkið!
Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa í bobbingana held ég.
Erfiðasti andstæðingur: Umm Guðmunda fær þann heiður.
Ekki erfiðasti andstæðingur: Það eru allir erfiðir á sinn hátt, en segjum bara Anna María;)
Skemmtilegar sögur sem tengjast mfl. kvenna (mega alveg (endilega) vera grófar): Þegar 2 stelpur, Bára og Sif voru í sturtu og kölluðu á mig: Dagný sjáðu sjáðu…Og þær voru eitthvað að perrast í hvor annarri í sturtu! Það var fyndið haha:’)
Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): 2 gellur í KS og svo Hafrún sem er nú í Aftureldingu og stelpa í Haukum Lovísa.
Sætasti sigurinn í fótbolta: Mér finnt allir sigrar sætir. Fæ valkvíða á að velja svona.
Mestu vonbrigði tengd fótbolta: Þegar við töpuðum á móti Haukum,úrslitaleiknum, að Hauka-gellurnar skoruðu á lokamínútunni.
Uppáhaldslið í enska: Ávallt Leeds! en Liverpool líka:)
Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Ég ætla segja Gumma litla.
Hver var með furðulegustu venjurnar (hjátrú) fyrir leik af leikmönnum Selfoss: Ástarengilinn hún Gumma litla.
Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Hjá stelpum Thelma Sif og Þóra;), annars er ég ekki fróð með alla leikmenn Suðurlands.
Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með/vinna fyrir: Æjj ég er með valkvíða, en ábyggilega, veistu ég veit það ekki. Ég sagðist aldrei ætla spila með Selfossi en sjáðu núna.
Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta (s.s. Helena ekki talin með): Allir eru góðir á sinn hátt og ég dýrka alla fótboltaþjálfara mína á minn hátt. Og ég vel ekki úr.
Besti íþróttafréttamaðurinn: Gaurinn þarna sköllótti sem er á rúv eða stöð 2.
Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Guð ég er tóm. Einhver stelpa sem var einu sinni með íþróttafréttirnar,veit ekki hvað hún heitir.
Hefurðu skorað sjálfsmark: Já auðvitað, ég verð að fá að skora í eitthvað mark sem er næst mér.
Hver tekur lengstu trúnó-in í hópnum/talar mest: Dagný nafna mín, hún er nefnilega alltaf að spyrja hvað klukkan er.
Hver er háværust í hópnum: Ég viðurkenni að ég hlæ hæst, en háværust fær Þóra Margrét:)
Hvaða þrjá Selfyssinga (fyrr og síðar) tækir þú með þér á eyðieyju og afhverju: Sif, Gummu litlu og Önnu Maríu, my team.
Hvað kemur þér í gott skap: Ræktin með strákunum, fótbolti með stelpunum,fjölskyldan mín,vinir mínir:) Og líka þegar Guðbjörg elskan er í Farmville<3
Ef þú mættir vera ósýnileg í einn dag, hvað myndirðu gera: Ábyggilega fara í alla stelpuklefana á landinu.
Hverjar eru merkustu persónurnar sem Selfoss hefur alið að þínu mati: Sævar Þór og Guðmunda.
Frægasti Selfyssingurinn: Ingó er orðin býsna frægur;)
Í hverju varstu/ertu best í skóla: Allt tengt íþróttum á verklegan hátt.
Uppáhaldskennari ever: Gunnar Borgþórs!
Uppáhalds barnaefni í æsku: Simbað og Andrés Önd.
Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar og afhverju: Sunnudagur þá hef ég ekkert að gera.
Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Noregur og Danmörk:)
Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Veistu ég hef alltaf haft gaman af öllum vinnum sem ég hef unnið:)
Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Þið tékkið bara á því næst þegar þið farið inná. En sem dæmi: Hæ, ég heiti Dagný og vil enga typpalinga(Karlmenn).
Hvað tekuru í bekk trukkur? (spurning frá síðasta viðmælanda (Sif):Heyrðu ég hef tekið 70 kg!:)
Hver á að svara þessum lista næst og afhverju: Anna María:D
Spurning á næsta viðmælanda: Hlærðu með mér eða að mér bi-arinn minn? P.s. Sannleikann í þetta skipti.
Eitthvað að lokum: Í sálfræði fræðumst við um Sálina… Sálina hans Jóns míns…. P.s. Sjáumst í sturtu stelpur.


4 Comments
þetta er nú mesta steypa sem ég hef lesið dagný :D þú ert klikkuð:)
flott Dagga, flott! haha
Hahaha:) Þetta var gaman:’)
hahahaha Dagný þú ert klikkhaus ;) en fyndið samt sem áður..