Pepsi deild karla

Stöðutafla
leikirsigrjafnttöp+/-stig
1ÍA
3
3
0
0
3
9
2FH
3
2
1
0
2
7
3Valur
3
2
0
1
2
6
4Stjarnan
3
1
2
0
1
5
5Keflavík
3
1
1
1
3
4
6KR
3
1
1
1
0
4
7Breiðablik
3
1
1
1
0
4
8Fram
3
1
0
2
-1
3
9Selfoss
3
1
0
2
-2
3
10Fylkir
3
0
2
1
-1
2
11ÍBV
3
0
1
2
-2
1
12Grindavík
3
0
1
2
-5
1

Sjá nánar á KSÍ.is

Pepsi deild kvenna

Stöðutafla
leikirsigrjafnttöp+/-stig
1FH
2
1
1
0
3
4
2Breiðablik
2
1
1
0
3
4
3Þór/KA
1
1
0
0
2
3
4Valur
2
1
0
1
1
3
5Stjarnan
2
1
0
1
0
3
6ÍBV
2
1
0
1
-1
3
7KR
1
0
1
0
0
1
8Fylkir
2
0
1
1
-2
1
9Selfoss
2
0
1
1
-3
1
10Afturelding
2
0
1
1
-3
1

Sjá nánar á KSÍ.is

Leikir og úrslit

Selfoss - Leikjaplan
  • 6.mai  Selfoss - ÍBV  2 - 1  Pepsi-deild karla
  • 10.mai  Valur - Selfoss  3 - 1  Pepsi-deild karla
  • 13.mai  Selfoss - KR  3 - 3  Pepsi-deild kvenna
  • 15.mai  Selfoss - FH  0 - 1  Pepsi-deild karla
  • 18.mai  Valur - Selfoss  4 - 1  Pepsi-deild kvenna
  • 21.mai  Fram - Selfoss   -   Pepsi-deild karla
  • 22.mai  Selfoss - FH   -   Pepsi-deild kvenna
  • 24.mai  Selfoss - Grindavík   -   Pepsi-deild karla
  • 29.mai  Breiðablik - Selfoss   -   Pepsi-deild kvenna
  • 31.mai  Selfoss - Breiðablik   -   Pepsi-deild karla

  • Sjá alla leiki

    cartes de visite

    Hin hliðin – „Dengsi“

    12. jan. ´10 | babu | 0 athugasemdir
    Fréttir-Hin hliðin

    Áfram höldum við að kíkja á hina hliðina á þeim sem tengjast fótboltanum á Selfossi á einn eða annan hátt. Síðast var það Bárður Guðmundsson „í GÁB“ sem svaraði og valdi hann vin sinn Sumarliða „Dengsa“ Guðbjartsson  til að spreyta sig næst, en þar er á ferðinni eitthvað það gáfulegasta sem sést hafði á knattspyrnuvöllum Selfoss allt þar til Sævar Gísla fór að láta að sér kveða:

    Dengsi

    Fullt nafn: Sumarliði Guðbjartsson

    Gælunafn: Dengsi

    Aldur (í anda): 25 ára og ekki degi eldri! (Er annars 57ára)

    Börn: Sif, Sigursteinn og Hildur

    Hvað gerir þú: Er Landpóstur í dag

    Hvað gerir þú ekki: Þvæ þvotta og þurka ekki af (þurrkar semsagt af?)

    Hvað eldaðir þú síðast: Kalkún

    Uppáhalds vefsíður: Fótbolta og veiðisíður

    Uppáhalds Facebookvinur: er ekki á Facebook

    Fyrsta hljómplata sem þú eignaðist: Með The Kinks

    Uppáhaldsskemmtistaður fyrr og síðar: Gömlu sveitaballahúsin í Árnessýrslu

    Hvern/hverja vildir þú helst vilja sjá live á tónleikum: Led Zepperlin, en það er líklega orðið of seint.

    Hver er frægasta persónan í farsímanum þínum: Engin frægur (eftir öll þessi ár hjá Símanum!!)

    Hversu lengi ertu að koma þér af stað á morgnana: Er mjög snöggur (eins og í boltanum!)

    Hvernig er best að pirra andstæðinginn: Klípa hann í síðuna!

    Hvaða stöðu spilaðir þú í den: Miðframherji

    Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum: Jimmy Greaves, einn mesti markaskorari sem England hefur alið og að sjálfsögðu spilaði hann með Tottenham Hotspur

    Erfiðasti andstæðingur: Líklega er það Gunnar Austfjörð, hann spilaði með ÍBA og var alltaf með hanska á höndunum þó að það væri yfir 20 stiga hiti

    Ekki erfiðasti andstæðingur: Allir hinir, smá grín man ekki eftir neinum sérstökum sem ég get nefnd með nafni.

    Besti samherjinn (leikmaður eða í stjórn): Þeir eru nokkrir, verð að nefna Kidda Gríms sem var ansi drjúgur á kantinum þ.e.a.s. ef hann gat tollað inná vellinum, var alltaf að meiðast greyið!

    Eftirminnilegasti samherji þinn á ferlinum (ekki endilega besti): Margir eru það, en verð að nefna einn sem heitir Sigbergur Sigsteinsson sem ég spilaði með í Fram 1977, get ekki sagt það hér fyrir hvað hann er eftirminnilegur!!

    Sætasti sigurinn í fótbolta: 1985 þegar við unnum 3.deildina unnum alla leiki nema einn. Þá byrjaði ég aftur eftir að vera búinn að vera í hvíld í 5ár (það var nátturulega bara bilun). (eitthvað hefur þú verið þreyttur 1980!!) („,)

    Mestu vonbrigði tengd fótbolta: 11-0 tap á móti ÍBV 1976, ef það hefur verið einhvertíma sem maður hefur vilja hverfa ofan í völlin þá var það þarna.

    Uppáhalds knattspyrnumaður: Ásgeir Sigurvins.bæði fyrr og síðar

    Uppáhaldslið í enska: Tottenham Hotspur, síðan 1963 takk fyrir!

    Hver var besti þjálfarinn sem þú hafðir í fótbolta: Magnús Jónatanson

    Efnilegasti leikmaður Selfoss fyrr og síðar: Það er nú erfitt að taka einn út,en Kristinn Ásgeirsson var annsi efnilegur á sínum tíma.

    Grófasti leikmaður Suðurlands fyrr og síðar: Guðmundur Karlsson

    Besti  íþróttafréttamaðurinn: Bjarni Fél

    Ekki besti íþróttafréttamaðurinn: Gaupi

    Hefurðu skorað sjálfsmark: Nei, var aldrei það nálægt mínu marki til að geta skorað sjálfsmark, haha

    Hvað kemur þér í gott skap: Er alltaf í góðu skapi

    Ef þú myndir stranda á eyðieyju, hvaða þrjá tengda Selfoss hópnum (lið, stjórn, staff o.s.frv.) myndir þú vilja hafa með þér og afhverju: Bárð Guðm. er svo skipulagður. Matta Sigugeirs. til að sjá um að skemmta okkur og Ödda Grétas, til að veiða í matinn.

    Hver var uppáhaldskennarinn þinn í skóla: Kristján, man ekki eftirnafnið (er orðinn svo gamall)

    Hver er leiðinlegasti dagur vikunnar: Allir jafn góðir (ég mótmæli allur)

    Uppáhalds land/þjóð annað en Ísland: Spánn, það er ekki hægt að segja England núna

    Hvert er versta starf sem þú hefur unnið: Lenti einu sinni í því að þrífa kyndikatla hjá MBF, það var alveg hræðilegt.

    Hvernig myndi auglýsing um sjálfan þig hljóma á einkamál.is: Ekki hugmynd, á ekki von að því að nýta þetta!

    Bítlarnir eða Rolling Stones: Bítlarnir

    Hver á að svara þessum lista næst: Þorvarður Hjaltason

    Eitthvað að lokum: Sjáumst hress og kát á vellinum í sumar. Áfram Selfoss!!!

    Þökkum Dengsa kærlega fyrir, næst fær Tobbi Hjalta það skemmtilega og krefjandi verkefni að sitja fyrir svörum.

    ATH: Óviðeigandi innskot (og jafnvel leiðinda einkahúmor) eru frá umsjónarmanni (Babu) komin og  þess má geta að myndin af Dengsa er stolin í algjöru óleyfi frá Hildi dóttir hans („,)

    Færðu inn athugasemd

    Your email address will not be published. Required fields are marked *

    *

    You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>