Archive for janúar, 2010
31. jan. ´10 | Tomas | 0 athugasemdir
Annað-Fréttir-mfl. karla
Jóhann Ólafur Sigurðsson markmaður Selfossliðsins í knattspyrnu vann í gær Sveinbjörn Jónasson í spurningarkeppni fotbolti.net. Sveinbjörn keppir fyrir hönd Grindavík og þrátt fyrir spurningar um leikmenn Grindavíkur átti Jói ekki í vandræðum með Sveinbjörn og sigraði 26-13. Með þessu sigri er Jói komin í sex manna úrslit og eðli málsins samkvæmt binda Selfyssingar miklar vonir við hann. Sævar Þór Gíslason [...]
30. jan. ´10 | babu | 0 athugasemdir
Annað-mfl. karla
Frábærar fréttir úr herbúðum okkar manna í dag er einn efnilegasti leikmaður liðsins og burðarás frá síðasta tímabili Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði undir þriggja ára framlenginu á samningi sínum við klúbbinn, eða til ársins 2013. Það vita allir sem fylgdust með leikjum liðsins síðasta sumar hversu góðar fréttir þetta eru enda ekki ólíklegt að þessi strákur verði eftirsóttur í framtíðinni. [...]
29. jan. ´10 | babu | 0 athugasemdir
Fréttir
Hópa og firmamót til minningar um Guðjón Ægi Á dögunum kom eftirfarandi auglýsing í staðarblöðunum sem vert er að veita athygli og benda fólki á að taka 6.febrúar algjörlega frá: Úrvalsdeildarlið Selfyssinga í knattspyrnu undirbýr sig nú að kappi fyrir átökin í Pepsideildinni í sumar. Af því tilefni að liðið leikur nú í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu hefur [...]
28. jan. ´10 | Tomas | 2 athugasemdir
Annað-Fréttir-mfl. karla
Á Þorrablótinu hans Kjartans Björnssonar sem haldið var um síðustu helgi var óvænt skemmtiatrið. Þar steig á svið hljómsveitin Dúkarabandið og flutti nokkur frumsamin lög og hélt í leiðinni útgáfutónleika sína. En á dögunum gáfu þeir út diskinn „Tree little roofer boys“ Á Þorrablótinu gengu svo leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu um salinn og seldu diskinn fyrir þá félaga og [...]
27. jan. ´10 | thora | 0 athugasemdir
Fréttir
Meistaraflokkur kvenna leitar nú að jákvæðu og áhugasömu fólki til þess að starfa í kringum flokkinn. Í því fælist t.d. aðstoð við fjáraflanir, undirbúning heimaleikja og fleira. Meistaraflokkur kvenna á Selfossi er á hraðri uppleið og eru um 20 stelpur sem æfa með liðinu. Áhugasamir hafi samband við Þóru Margréti(694-6479, thora89@hotmail.com) eða Auði Ólafsdóttur ( auduro@intrum.is)
